Á mánudeginum fórum við í rútu aftur til New York og tókum svo leigubíl heim til mín.
Á þriðjudeginum fórum við í sightseeing og löbbuðum Brooklyn Bridge. Og þegar við vorum hjá Tribeca sáum við að það var verið að taka upp Law and Order. Þeir leyfðu okkur samt ekki að vera með. Og við tókum fullt af myndum þannig að þið getið kíkt á það.
Á miðvikudeginum fórum við að sjá Kristinn Sigmunds í Romeo et Juliette í Metropolitan. Mér finnst óperur ekki skemmtilegar.
Á fimmtudeginum þá´fór ég í prufu há NYU og það gekk bara ágætlega, betur heldur en ég hélt. Svo fór mamma og ég fór út með Peter og við fórum á tapas bar fyrst, hef aldrei farið á tapasbar og það var mjög gott. Fórum síðan á leikritið Jump/Cut, það var allt í lagi soldið langdregið samt.
Svo kom ég heim eftir miðnætti og ætlaði að opna með lyklinum mínum, komst inn um útidyrnar, en þegar ég reyndi að komast inn í íbúðina þá bara gat ég ekki opnað, eg var læst úti L og komst ekki. Ég varð soldið hrædd og ógeðslega pirruð þar sem ég hata stelpurnar sem ég leigi með þær eru óþolandi og mamma getur staðfest það. Ég hringdi í Brian, og hann svaraði ekki. Meera svaraði ekki, Anita svaraði. Peter bauð mér að vera hjá sér en ég vildi það ekki. Svo hringdi ég í ömmu og afa. Svo hringdi Meera í mig og Brian hringdi síðan líka, þá var hann úti en sagði mér að koma. Þá var klukkan að verða 1 og ég vildi taka leigubíl. Lestin hefði ekki veri neitt mál en þar sem ég þarf líka að taka strætó þegar ég er fer úr lestinni á Westchester Square í Bronx þá vildi ég það ekki svo ég tók gulan leigubíl hjá Lexington Avenue hjá mér og sem betur fer tók hann mig til Bronx þvi ekki allir vilja fara þangað.
Daginn eftir fórum við Brian svo til Philadelphia þar sem ég var í prufu fyrir Uarts. Ég er ótrúlega spennt fyrir þessum skóla og mér gekk bara fínt í prufunni. Gleymdi reyndar einni línu af texta í Unusual Way, en ég nefnilega held að það gerist þegar ég kemst svo þvílíkt inn í lagið en konan sagði að það væri í lagi og meðleikarinn var ánægður.
Leiklistin gekk ótrúlega vel.
Hitti Brian síðan þar, ekki minn Brian heldur Brian sem er hálfíslenskur og er í skólanum. Hann var í bol frá Íslandi til heiðurs mér og svo var hann bara búinn að segja öllum frá mér í skólanum, ég var bara orðin fræg.
Fílharmónían er að fara með Carmina Burana til Búlgaríu í haust. Mig langar með L Af hverju var ekki farið í fyrra? eða sumar? L ekki gaman...mig langar...
En ég er að koma til Íslands í lok mars svo ég geti æft fyrir tónleikana því ég get ekki æft hér, og ég er búin að kaupa geðveikan kjól J á eftir að kaupa skó. Sá Anna Klein skó í Macy’s en þeir kostuðu alveg $235.
Á fimmtudeginum fór ég að sjá Spelling Bee.
Svo hraðspóla ég bara, hehe...á föstudaginn vann ég Wicked lottóið, það virkar þannig að maður skrifar nafnið sitt á blað og síðan er dregið og 12 manns fá miða á fremsta bekk á $25 og það voru svona 200 manns þarna en ég fékk miða :) og þetta var geðveikt!! fremsta bekk á Wicked! En ég er einmitt að fara í prufu fyrir þennan söngleik 21. mars, bara fyrir reynsluna.
Valdís
Monday, March 13, 2006
Previous Posts
- "She loves one man and only one man. She would die...
- Sá þetta á blogginu hennar Rósu: () reykt sígaret...
- En fimmtudaginn 16. febrúar fórum við í lest til H...
- Ok, soldið langt síðan ég hef skrifað. Segi allta...
- Ég lofa að fara að blogga. Þarf bara að setjast ni...
- Vegna Nor’eastern er ég á flugvellinum í Cleveland...
- Sorry hvað er langt síðan ég skrifaði síðast en er...
- Í dag svaf ég til 11:30 og var bara heima því ég v...
- Ég er á flugvellinum í Pittsburgh núna, rosa flott...
- Kommentakerfið er komið í lag!
Links

3 Comments:
Gaman, gaman, nýtt blogg. Hlakka ekkert smá til að sjá prinsessukjólinn :o)
Það fær enginn að sjá hann fyrr en 6. maí :P en ég máta hann í hverri viku því hann er svo mikið æði!
Þú minntist um daginn á leigubílstjórann í Hartford, þennan sem gat ekki einu sinni skipt $20 seðli og var þar að auki alveg stórfurðulegur. Ég var satt að segja búin að steingleyma honum.
Svo var það Boston í skítakulda í þrjá sólarhringa en mjög gaman fyrir mig að koma þangað aftur; fengum okkur góðan mat milli þess sem þú fórst í tvö inntökupróf og við svo saman í kynningu á mánudeginum í Emerson að ógleymdri sýningunni á Les Miserables í The Opera House. btw þá fórum við á steikar-veitingahúsið á föstudagskvöldið og Kashmir á laugardagskvöldið.
Svo fórum við reyndar á þriðjudagskvöldið á sýninguna í Metropolitan eftir frábæra en kalda sight-seeing ferð um New York borg.
Þú þarft allavega að vera viss um að skórnir sem þú kaupir séu mjúkir og þægilegir og hægt að standa í þeim í nokkra klukkutíma í einu enda verða þeir fyrst og fremst keyptir til að vera í þegar þú syngur.
Njóttu lífsins í stórborginni.
Mamma
Post a Comment
<< Home